Meira en þúsund orð

Á föstudaginn opnum við sýningu í Bíósal Duus Safnahúsa sem er hluti af listahátíðinni List án landamæra en það er hátíð sem leggur áherslu á list fatlaðra listamanna. Tilgangur hennar er að auka menningarlegt jafnrétti & fjölbreytni með því að skapa faglegan vettvang & tækifæri fyrir fatlaða listamenn. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og menningarfulltrúa.

Á sýningunni gefur að líta verk eftir Jönu Birtu Björnsdóttir, en hún er aðgerðarsinni, femínisti, myndlistarmaður OG lífeindafræðingur!

Á sýningunni Meira en þúsund orð má finna 16 setningar um ofbeldismyndir gegn fötluðu fólki en setningarnar mótuðu meðlimir samtakanna Tabú. Verkin eru hlaðin merkingum og margræðum, írónískum táknum. Merkingum og táknum sem geta verið áhorfandanum aðgengileg þar sem þær endurspegla menningu okkar samfélags og veruleika ákveðins minnihlutahóps sem í honum býr. Þær vekja einnig upp ýmsar óþægilegar spurningar. Spurningar um mismunun og óréttlæti. https://fb.me/e/PUFYYWUU

Það er sagt að myndir segi meira en þúsund orð og á það svo sannarlega við um verk Jönu Birtu. List hennar fellur undir það sem kalla má aktívisma í myndlist, en það er nálgun í listum sem er byggð á virkri þátttöku listamannsins í aðgerðum á pólitískum eða félagslegum vettvangi en myndlistin hefur í sínum fjölbreytileika mikið verið notuð á þennan hátt í gegnum tíðina. Kínverski samtímalistamaðurinn Ai Weiwei fer þá leið í sinni listsköpun og segir m. a.; “ef eitthvað er þá snýst listin um… siðferði, um trú okkar á mannkynið. Án þess er einfaldlega engin list.”