Fullorðinsföndur - Artmoney vinnustofa

Í tilefni myndlistarsýningarinnar List sem gjaldmiðill – ARTMONEY NORD sem nú stendur yfir í Átthagastofu Bókasafnsins bjóðum við upp á Artmoney vinnustofu fimmtudagskvöldið 20. september k. 19.30-21.30.

ARTMONEY NORD er myndlistarverkefni þar sem listamenn af Norðurlöndunum skapa sinn eigin gjaldmiðil.

Bókasafnið leggur til efnivið en þátttakendum er einnig frjálst að koma með eigið efni.

Ókeypis er á vinnustofuna og öll hjartanlega velkomin en mikilvægt er að skrá sig. Það er hægt að gera í afgreiðslu safnsins eða með því að smella HÉR.