Bókakonfekt 2018

Bókakonfekt Bókasafns Reykjanesbæjar verður haldið fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20 en þá lesa höfundar upp úr nýútkomnum bókum sínum.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir les upp úr bókinni Hið heilaga orð.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir les upp úr bókinni Hasim – götustrákur í Kalkútta og Reykjavík

Dagný Maggýjar les upp úr bókinni Á heimsenda

Gestir verða boðnir velkomnir með lifandi tónlist frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar – kaffi og konfekt í boði.

Dagskráin er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurnesja.

 

mynd af bókakápum