Bókabíó: Víti í Vestmannaeyjum

Föstudaginn 31. maí kl. 16.30 verður kvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum sýnd í Bókasafni Reykjanesbæjar. 

Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum á öllum aldri.

Myndin er í 95  mínútur, með íslensku tali. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu. 

Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 900 kr.