Bókabíó: Að temja drekann sinn

Föstudaginn 22. febrúar kl. 16.30 verður kvikmyndin Að temja drekann sinn (How to tame your dragon) sýnd í Bókasafni Reykjanesbæjar. 

Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum frá 7 ára aldri. 

Myndin er í 90 mínútur, með ensku tali og íslenskum texta. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu. 

Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 850 kr.