Bókabíó

Bókabíó

Síðasta föstudag hvers mánaðar klukkan 16.30 í vetur verður Bókabíó í Bókasafni Reykjanesbæjar. Í miðju safnsins verður settur upp skjávarpi og þar munum við varpa mynd sem gerð er eftir samnefndri bók. Sýndar verða barna-, unglinga- og fjölskyldumyndir. 

Fyrsta myndin sem við sýnum í vetur heitir BFG sem er eftir samnefndri bók Roalds Dahl (Bergrisinn Frómi Góði). Bókin er að sjálfsögðu til í safninu og við hvetjum unga sem aldna til að lesa þessa stórgóðu bók áður en við horfum saman á myndina.

BFG

Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!