Afmælissýning Tjarnarsels í Átthagastofu

Afmælissýning Tjarnarsels var opnuð í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar í síðustu viku en hún var sett upp í tilefni 50 ára afmælis elsta leikskóla bæjarins. Saga Tjarnarsels og leikskóla á Íslandi er sett fram á skemmtilegan hátt og upprunalegir munir eru til sýnis. Sýningin er gagnvirk sem þýðir að börnum er frjálst að leika sér með efniviðinn.

Verkefnið er samstarfsverkefni Tjarnarsels og Bókasafns Reykjanesbæjar og var hugmyndin upphaflega komin frá Ingu Maríu Árnadóttur verkefnastjóra hjá Tjarnarseli og fyrrum leikskólastjóra. Á 20 ára leikskólastjóraferli fannst henni alltaf mikilvægt að varðveita leikföng, húsgögn og aðra muni sem leikskólinn var hættur að nota og hýsir Byggðasafn Reykjanesbæjar þá alla í dag.