You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér

Vena Naskręcka / Michael Richardt

Listamennirnir Vena Naskręcka og Michael Richardt opna sýninguna You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér hjá Listasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 26. nóvember 2022 kl. 14:00.

Vena og Michael eru gjörningalistamenn og mun sýningin verða vitnisburður um hvar þau eru stödd á þessum ákveðna tímapunkti og skrásetning á því sem þeim er nú hugleikið. Þau eru hér og nú, erlendir ríkisborgara á Íslandi, að setja mark sitt á Listasafn Reykjanesbæjar þar sem þau ríkja í ákveðinn tíma.