Ljós og tími

Á síðustu 15 árum hefur Listasafn Reykjanesbæjar eignast fjölda listrænna ljósmynda sem nú má sjá á sýningu hér í Bíósal.  Hér má sjá verk eftir bæði innlenda og erlenda ljósmyndara s.s. Einar Fal Ingólfsson, Spessa, Katrínu Elvarsdóttur, Tom Sandberg og Vigdísi Handhammer. Titill sýningarinnar vísar í helstu frumþætti miðilsins, þ.e. ljós og tíma. Einnig má velta fyrir sér orðum John Szarkowski, yfirmanns ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsta sérfræðings í bandarískri ljósmyndun, sem setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka; þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt „speglamenn“, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. „gluggamenn“. 

Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.