Litróf

Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ opnar sýninguna „Litróf“ laugardaginn 6.apríl kl. 14.00 í Stofunni í Duus Safnahúsum. 
Á sýningunni má sjá verk eftir félagsmenn sem unnin voru á haust- og vetrarnámskeiðum félagsins og voru það þrjú námskeið sem samanstóðu af byrjendanámskeiði í málun, málun fyrir lengra komna og grafík (painterly print). Kennarar á námskeiðunum voru Kristbergur Ó Pétursson, Bragi Einarsson og Elva Hreiðarsdóttir.Sýningin stendur til 23. apríl og eru Duus Safnahús opin alla daga kl. 12:00 - 17:00.