Þér er boðið í afmæli!
07.03 kl. 15:00-18:00
Viðburðir bókasafn
Bókasafnið 60 ára
Miðvikudaginn 7. mars nk. verður Bókasafn Reykjanesbæjar 60 ára og þar með elsta stofnun bæjarins.
Í tilefni þessa stórafmælis verður blásið til veislu frá klukkan 15.00 - 18.00 sem öllum bæjarbúum er boðið að taka þátt í. Athugið að afmælisbörn dagsins í Reykjanesbæ, 7. mars, fá afmælisgjöf frá Bókasafninu.
Veisluhöldin fara að sjálfsögðu fram í Bókasafninu og vonandi komast sem flestir til að fagna þessum skemmtilegu tímamótum.
Boðið verður upp á köku, kaffi og djús og allir gestir fá glaðning frá safninu!