Sumarlestur

Sumarlestur verður í Bókasafni Reykjanesbæjar í allt sumar; fjölbreyttur og skemmtilegur!

 

Sumarlestur er mikilvægur því hann viðheldur og eflir lestrarfærni sem börnin hafa náð í vetur. Eftir langan vetur eru flest börn þó reiðubúin í að breyta til og brjóta upp hina daglegu rútínu. Sumarlestur hefst formlega 1. júní en við erum byrjaðar að taka  við skráningarblöðum.

Sumarlestur bókasafnsins er því gerður skemmtilegur og fjölbreyttur.

 

Hér er RAFRÆN SKRÁNING!


Öll börn í grunnskólum Reykjanesbæjar í 1.-5.bekk fá blað með sér heim sem í senn er lestrarbingóspjald og skráningarblað í sumarlestur. Börn í 6.-10.bekk fá blöðin með einkunnum í lok skólaárs eða send heim í tölvupósti frá umsjónarkennurum. Skráningarblöð má einnig nálgast í afgreiðslu safnsins sem og fleiri bingóspjöld.

 Mikilvægt er að skila skráningarblaðinu í Bókasafn Reykjanesbæjar. Allir sem skila komast í pott og Lestrarhestrar verða dregnir út tvisvar sinnum í mánuði í allt sumar og fá lestrarverðlaun. Þegar fyrsta bingóspjaldinu hefur verið skilað er hægt að nálgast fleiri í safninu. Einnig verður orðaleit í boði en það er skemmtileg leið til að leika sér með tungumálið og auka orðaforða.


Í sumar verða sérstakir óvissubókapakkar í boði, en það er upplagt fyrir þá sem vita ekkert hvað þeir eiga að lesa eða vilja fá ferskar hugmyndir. Pakkinn er opnaður og þá koma í ljós bækur sem koma skemmtilega á óvart.


Öll börn fá einnig bókaskrá en henni skila börnin til kennara sinna þegar skólinn byrjar aftur í haust.

Við biðjum ykkur að skila inn fyrsta blaðinu í Bókasafn Reykjanesbæjar og gæta þess að allar upplýsingar fylgi skráningarblaðinu. Boð á uppskeruhátíð í lok sumars verða send út rafrænt.

Safnið er opið alla virka daga frá klukkan 09.00-18.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00-17.00.

Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

Nánari upplýsingar veita:

Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnastýra
Netfang: anna.m.olafsdottir@reykjanesbaer.is
Sími: 421 6774

Anna María Cornette, deildarstjóri barna- og unglingastarfs
Netfang: anna.m.cornette@reykjanesbaer.is
Sími: 421 6772