Teiknimyndasögunámskeið

loa_banner

Myndasögustund

 

Myndasögur Lóu Hlínar eða Lóuboratoríum hafa notið mikilla vinsælda og hefur hún verið með sýningar víða. Í tilefni myndasögusýningar hennar Gamandrama sem nú er í gangi í Bókasafni Reykjanesbæjar verður Lóa Hlín með námskeið í myndasögugerð. 

Á námskeiðinu verða gerðar léttar og skemmtilegar æfingar sem henta fyrir byrjendur sem og lengra komna. Hvorki teiknikunnátta né kímnigáfa eru nauðsynleg. Það eina sem þarf að koma með er áhugi og forvitni.

 

Athugið að skráning er nauðsynleg þó námskeiðið sé frítt. Námskeiðið er hugsað fyrir alla áhugasama, óháð aldri og fyrri störfum.