Saumað fyrir umhverfið - opnun fyrstu Pokastöðvarinnar á Suðurnesjum

Laugardaginn 29. september verður fyrsta Pokastöð Suðurnesja opnuð í Bókasafni Reykjanesbæjar. Í tilefni þess verður gestum og gangandi boðið að „sauma fyrir umhverfið“ frá kl. 14 til 16.

Saumaðir verða margnota taupokar sem eru síðan gefnir í Pokastöðina. Áhugasamir þurfa ekki að kunna að sauma til þess að geta tekið þátt. Efni og saumavélar verða á staðnum en þátttakendur eru hvattir til að mæta með alls konar efni og einnig er í boði að mæta með eigin saumavélar.

Hvað er Pokastöð?

Pokastöðvar eru til í nokkrum sveitarfélögum á Íslandi en það er stöð þar sem fólk getur fengið að láni margnota taupoka, t.d. í bókasafninu og matvöruverslunum. Margir eiga það til að gleyma margnota pokum heima og þá er hægt að fá taupoka að láni og skila honum síðar á hvaða Pokastöð sem er.

Af hverju að sauma fyrir umhverfið?

Bókasafnið tekur þátt í átakinu Plastlaus september sem miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um ofnotkun plasts og skaðsemi plasts fyrir umhverfið. Margnota taupokar geta auðveldlega komið í stað plastpoka.