Notaleg sögustund með Höllu Karen: Kardemommubærinn

Laugardaginn 23. febrúar kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen. Í þetta sinn verður sungið og lesið upp úr Kardemommubænum.

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Tilboð á Ráðhúskaffi fyrir börn - 1/2 panini og safi/kókómjólk á 500 kr. 

Halla Karen syngur og les söguna um Kasper, Jesper, Jónatan og Soffíu frænku. Kardemommubærinn er vinsælasta ævintýri norska höfundarins Thorbjörns Egners og hefur notið mikilla vinsælda meðal barna á Íslandi í fjöldamörg ár.