Notaleg sögustund með Höllu Karen - Ávaxtakarfan 20 ára

Laugardaginn 29. september kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen. Í tilefni 20 ára afmælis Ávaxtakörfunnar ætlar Halla Karen að segja sögur og syngja lög úr söngleiknum. 

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Þess má geta að Halla Karen lék Evu appelsínu í uppsetningu Leikfélags Keflavíkur á Ávaxtakörfunni 2014. 

Tilboð á Ráðhúskaffi fyrir börn - 1/2 panini og safi/kókómjólk á 500 kr.