Notaleg sögustund: Áfram Latibær!
24.02 kl. 11:30-12:00
Viðburðir bókasafn
Áfram Latibær!
Laugardaginn 24. febrúar klukkan 11.30 verður Notaleg sögustund með Höllu Karen í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Halla Karen ætlar að lesa og syngja úr sögunni um stuðpinnana í Latabæ fyrir börnin að þessu sinni.
Halla Karen les og syngur eins og henni einni er lagið og við mælum með að allir mæti tímanlega því sagan er auðvitað frábær frá upphafi til enda.
Tilboð í Ráðhúskaffi fyrir börn og allir eru hjartanlega velkomnir.