Norræn bókmenntavika
12.11 kl. 09:00-12:00
Viðburðir bókasafn
Norræn bókmenntavika er haldin 12.-18. nóvember. Verkefnið er á vegum Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir á Norðurlöndunum og nágrannalöndum.
Þemað árið 2018 eru Hetjur á Norðurlöndunum og eftirfarandi bækur hafa verið valdar í tilefni þess:
Börn: Handbók fyrir ofurhetjur eftir Elias og Agnes Våhlund (SE)
Unglingar: Þau sem ekki eru til eftir Simon Stranger (NO)
Fullorðnir: Íslenskir kóngar eftir Einar Má Guðmundsson (IS)
Bókasafn Reykjanesbæjar stillir fram norrænum bókum í tilefni vikunnar.