Nammipokar og bókamerki - föndur á Listahátíð barna

Í tilefni Listahátíðar barna í Reykjanesbæ verður boðið upp á föndur fyrir alla fjölskylduna í Bókasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 4. maí kl. 11-13.

Yfirskrift sýninganna í ár er Hreinn heimur – betri heimur og verður gestum boðið að sauma sinn eigin margnota nammipoka sem hægt er að nota á nammibarnum.
Einnig verður hægt að föndra sín eigin bókamerki úr barnabókum.