Mottumars: Karlmenn og krabbamein

Þriðjudaginn 12. mars kl. 20.00 - 21.00 býður Krabbameinsfélag Suðurnesja upp á fræðslufund um Karla og krabbamein með Matta Ósvald í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Matti veltir upp spurningum eins og: „Eru karl- og kven-menn / karlmenn og konur ólík þegar kemur að því að sækja sér stuðning eftir að hafa greinst með krabbamein?“ og segir einnig frá hvað fjöldi karlmanna segir að sé mesti stuðningurinn.

Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.