Leshringur: jólalestur

Leshringur

 - Jólalestur - 

 

Þriðjudaginn 23. janúar klukkan 20.00 hittist Leshringur Bókasafns Reykjanesbæjar. Að þessu sinni ræðir hópurinn bækurnar sem lesnar voru um jólin. Margir fá bækur í jólagjöf, aðrir lesa alltaf sömu bókina um jólin og enn aðrir lesa það sem hendi er næst. Umræðurnar verða því vonandi líflegar og fjölbreyttar.

 

Allir hjartanlega velkomnir, heitt á könnunni.