Krakkajóga með Sibbu
09.10 kl. 11:30-12:00
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Í tilefni heilsu - og forvarnarviku býður Bókasafn Reykjanesbæjar upp á krakkajóga laugardaginn 9. október kl.11.30-12.00.
Sigurbjörg Gunnarsdóttir leikskólakennari og jógaleiðbeinandi leiðir tímann þar sem farið verður í skemmtilegar æfingar, öndun og slökun. Tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna!
Ókeypis er á viðburðinn og öll börn hjartanlega velkomin.