Jólasögustund með Höllu Karen

Laugardaginn 1. desember kl. 11.30 er Notaleg jólasögustund með Höllu Karen. Í þetta sinn verður sungið og lesið upp úr gömlum jólasögum um Grýlu og jólasveinana.

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Tilboð á Ráðhúskaffi fyrir börn - piparkökur og heitt kakó á 350 kr.