Í körfunni

Föstudaginn 1. september klukkan 17.00 opnar sýning um körfuknattleik í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar. Sýningin mun varpa ljósi á þróun meistaraflokka Keflavíkur og Njarðvíkur í karla- og kvennadeild.

 

Körfuknattleikur í Reykjanesbæ á sér langa og glæsta sögu en á sýningunni má sjá búninga frá mörgum tímabilum, skó, myndir og aðra muni sem tengjast félögunum. Einnig er búið að safna saman fréttum, myndum og öðru efni úr fréttablöðum svæðisins.

 

Sýningin opnar föstudaginn 1. september klukkan 17.00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Sýningin mun standa í 8 vikur eða til og með 31. október 2017.