Hrikalegt Hrekkjavöku perl

Hrikalegt Hrekkjavöku perl verður í Bókasafni Reykjanesbæjar þann 30. október.  Þá er öllum krökkkum boðið að mæta í bókasafnið og perla Hrekkjavöku myndir. Allt efni og áhöld á staðnum og í boði verður að láta strauja perlið þegar það er tilbúið.  

Við hvetjum alla krakka til að mæta í búningum á bókasafnið á laugardeginum. 

Hlökkum til að sjá ykkur í Hrikalegu Hrekkjavöku perli. Viðburðurinn er öllum að kostnaðarlausu.