Hrikaleg uppvakningaleit í Hólfinu
28.-30. okt
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Dagana 28. - 30. október er Hrikaleg uppvakningaleit í Hólfinu á neðri hæð, í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Þar verður gestum boðið að ganga inní Hrikalegt uppvakninga Hólf og leita að uppvakningum með vasaljósi.
Fjölda uppvakninga verður svo hægt að skrá á miða og taka þátt í lukkupotti þar sem einn heppinn þátttakandi hlýtur verðlaun.
Við mælum með því að börn yngri en 8 ára séu í fylgd með fullorðnum inni í Hrikalega uppvakninga Hólfinu.
Opið á virkum dögum 9.00 - 18.00 og laugardag 11.00 - 17.00.