Heilsufarsskoðun

Heilsufarsskoðun í tilefni af lýðheilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar.
Brunavarnir Suðurnesja bjóða upp á ókeypis heilsufarsskoðun í Aðalsafni  (Hjallavegi 2, 260 Reykjanesbæ).
Miðvikudaginn 1. október frá kl. 12.00 – 17.00
Kannað verður með:
✔ Blóðþrýsting.
✔ Púls
✔ Súrefnismettun
✔ Blóðsykur

Slysavarnardeildin Dagbjörg sinnir slysavörnum og öryggismálum í nærumhverfinu með aðkomu öflugra sjálfboðaliða. Lögð er sérstök áhersla á öryggi barna, eldri borgara og ferðafólks, auk umferðaröryggis.

Á viðburðinum verða þau með endurskinsmerki til að gefa gestum og kynningu á starfi sínu. Jafnframt bjóða þau upp á bæklinginn Örugg efri ár, sem fjallar um slysahættu á heimilum og stutt spjall fyrir þá sem hafa áhuga á því efni.


Öll eru hjartanlega velkomin!