Heilakúnstir - heimanámsaðstoð

Heilakúnstir

 

Þriðjudaginn 9. janúar klukkan 14.30 hefjast Heilakúnstir á ný í Bókasafni Reykjanesbæjar.


Heilakúnstir er heimanámsaðstoð fyrir börn í Reykjanesbæ frá 4. bekk. Heimanámsaðstoðin verður alla þriðjudaga frá klukkan 14.30-16.00 og alla fimmtudaga frá klukkan 16.00 til klukkan 17.30. 

Heilakúnstir eru samstarfsverkefni  Bókasafns Reykjanesbæjar og Rauða kross Suðurnesja. 

Nemendur og sjálfboðaliðar Rauða krossins hittast á neðri hæð safnsins í vinnuherbergi sem nefnist ,,Búrið“. Afslappað andrúmsloft verður í forgrunni þar sem hver og einn hefur tækifæri til að vinna á eigin hraða.
 

Heimanámsaðstoðin er ókeypis og allir eru velkomnir. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram.