Gleðijóga með Margréti Lilju

Stapasafn verður með gleðijóga fyrir börn yngri en tveggja ára í tilefni af BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ.

 

Viðburðurinn verður haldinn miðvikudaginn 7. maí klukkan 10.30 - 11.15.

 
Stapasafn er staðsett á Dalsbraut 11 í Innri-Njarðvík.
 
Viðburðurinn er að sjálfsögðu ókeypis og öll hjartanlega velkomin.