Foreldramorgunn: Svefn ungbarna
21.10 kl. 11:00-12:00
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Fimmtudaginn 21. október kl. 11.00 mætir Arna Skúladóttir höfundur bókarinnar Draumalandið í Bókasafn Reykjanesbæjar og fjallar um svefn ungbarna.
Arna er hjúkrunarfræðingur og helsti sérfræðingur landsins í svefni ungbarna. Hún starfar meðal annars við svefnráðgjöf á Landsspítalanum.
Allir foreldrar hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis.