Foreldramorgunn: Hreyfing á meðgöngu og eftir fæðingu

Á næsta foreldramorgni, fimmtudaginn 10. janúar kl. 11-12 kemur Sigrún Hákonardóttir - FitBySigrun, einkaþjálfari sem hefur sérhæft sig í þjálfun kvenna fyrir og eftir barnsburð.

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag en hinn fimmtudaginn geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.

Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.