Foreldramorgunn: Hlutverk doulu í fæðingu

Á næsta foreldramorgni, fimmtudaginn 18. október kl. 11 verður fjallað um hlutverk doulu í fæðingu. Soffía Bæringsdóttir doula heldur erindi.

Soffía Bæringsdóttir hefur starfað sem doula frá 2008 og verið þess heiðurs aðnjótandi að vera við yfir fimmtíu fæðingar og aðstoðað hátt í tvö hundrað pör í að undirbúa sig fyrir fæðingu. Hún hefur á undanförnum árum haldið fyrirlestra og námskeið um fæðingarundirbúning og svefn ungbarna, tekið á móti erlendum fyrirlesurum og haldið utanum doulu-nám á Íslandi.
Hún tekur að sér stuðning við verðandi foreldra á meðgöngu, í gegnum fæðingu og í sængurlegu. Auk þess að bjóða upp á paraviðtöl

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag en hinn fimmtudaginn geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.

Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.