Foreldramorgunn: Fyrstu mánuðirnir - Ráðin hennar Önnu Ljósu
29.11 kl. 11:00-12:00
Viðburðir bókasafn
Á næsta foreldramorgni, fimmtudaginn 29. nóvember kl. 11-12 koma Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Anna Eðvaldsdóttir höfundar bókarinnar Fyrstu mánuðirnir: Ráðin hennar Önnu Ljósu og fjalla um fyrstu mánuðina í lífi barns.
Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag en hinn fimmtudaginn geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.
Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.