Foreldramorgunn: Frjáls leikur barna

Á næsta foreldramorgni, fimmtudaginn 7. mars kl. 11-12 koma leikskólakennarar Vesturbergs og fjallar um frjálsan leik barna. Rannsóknir sýna að frjáls og sjálfsprottinn leikur barna hefur góð áhrif á þroska þeirra og mesti lærdómur barna er í gegnum leik.

-------------

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag en hinn fimmtudaginn geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.

Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.