Foreldramorgnar: Andleg og líkamleg líðan eftir fæðingu

Á næsta foreldramorgni, fimmtudaginn 12. mars kl. 11.00 verður fjallað um andlega og líkamlega líðan eftir fæðingu. Margrét Knútsdóttir ljósmóðir og jógakennari heldur erindi.

Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag en hinn fimmtudaginn geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.

Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.