Bókakonfekt barnanna: Upplestur úr Nærbuxnaverksmiðjunni og Mömmugulli
23.11 kl. 16:30-17:30
Viðburðir bókasafn
Bókakonfekt barnanna – upplestur fyrir börn úr jólabókunum 2018 fer fram föstudaginn 23. nóvember kl.16.30.
- Katrín Ósk Jóhannsdóttir les upp úr nýrri bók sinni Mömmugull (hentar börnum á leikskólaaldri).
- Arndís Þórarinsdóttir les upp úr nýrri bók sinni Nærbuxnaverksmiðjan (hentar börnum á fyrsta- og miðstigi grunnskóla).
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Líkt og áður býður Ráðhúskaffi upp á heitt súkkulaði og piparkökur.
Öll hjartanlega velkomin – tilvalin gæðastund fyrir fjölskylduna.
Dagskráin er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurnesja.