Bókabíó: The LEGO Ninjago

Föstudaginn 29. apríl kl. 16.30 verður kvikmyndin The LEGO Ninjago sýnd í Bókasafni Reykjanesbæjar. 

Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum frá 6 ára aldri. 

Myndin er í 100 mínútur, með íslensku tali. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu. 

Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 900 kr.