Föstudaginn 29. mars kl. 16.30 verður kvikmyndin Paddington 2 sýnd í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Myndin er byggð á samnefndri bók og hentar börnum frá 5 ára aldri.
Myndin er í 100 mínútur, með ensku tali og íslenskum texta. Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna að mæta í bókasafnið og horfa á mynd saman í notalegri stemningu.
Ráðhúskaffi er með tilboð: Frappuccino og kleinuhringur á 900 kr.