Bókabíó: Frosinn

 

Föstudaginn 17. janúar kl 16.30 verður myndin Frosinn sýnd í Bókabíói Bókasafns Reykjanesbæjar.

Anna er óttalaus og jákvæð prinsessa sem heldur af stað í ótrúlega ævintýraferð með hrjúfa klakasölumanninum Kristjáni og Sveini, hreindýrinu hans. Saman verða þau að leita að Elsu, systur hennar, en töframáttur hennar hefur sveipað ríkið Arendelle frosti og snjó. Anna og Kristján lenda í ýmsu og þurfa að takast á við erfitt fjallaklifur, úlfa og dularfull tröll. En svo hitta þau líka stórskemmtilega snjókallinn Ólaf sem sem slæst í för og hjálpar þeim að bjarga konungsríkinu.