Upplýsingar um safnið

Yfirlitsmynd

Við sameiningu þriggja sveitarfélaga á Suðurnesjum árið 1994 var ákveðið að sameina almenningsbókasöfnin Bókasafn Keflavíkur, Bókasafn Njarðvíkur og Lestrarfélagið í Höfnum í eitt safn, Bókasafn Reykjanesbæjar.

Bókasafn Reykjanesbæjar starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn númer 150 frá árinu 2012.

Leiðarljós Bókasafns Reykjanesbæjar 
Í samvinnu við íbúa bæjarfélagsins leitast starfsfólk við að veita vandaða bókasafns- og upplýsingaþjónustu í bjartri, opinni og vingjarnlegri stofnun. 

Markmið Bókasafns Reykjanesbæjar er:

  • að veita góðan aðgang að fjölbreyttum safnkosti til aukinnar þekkingar, þroska, víðsýni og afþreyingar fyrir alla íbúa Reykjanesbæjar.
  • að verða lifandi í hugskoti íbúanna sem heilsulind hugans og fjölbreytt menningar- og upplýsingastofnun.
  • að vinna stöðugt að því að lestur verði lífsstíll allra aldurshópa.
  • að vera til styrktar í hverskonar þekkingarleit og standa vörð um íslenska tungu.
  • að upplýsa um bæjarfélagið og margvíslega þjónustu þess.
  • að vera í framvarðasveit íslenskra almenningsbókasafna um jákvæða, markvissa og öfluga þjónustu.

Þetta gerum við með því að:

  • Vanda val bókakosts, tónlistar og kvikmynda, hafa rúman opnunartíma, leiðbeina um safnið og samskrá íslenskra bókasafna www.leitir.is, hafa gott aðgengi fyrir fatlaða og heimsendingarþjónustu fyrir sjúka og aldraða.
  • Gera hæfniskröfur til starfsmanna um góða þjónustu og stuðla að símenntun þeirra.
  • Vinna stöðugt að kynningu safnsins og laða íbúa að.
  • Leggja áherslu á mikilvægi lesturs í barnastarfi og fitja upp á nýbreytni í kynningu safngagna. Hafa íslenskt efni í fyrirrúmi og safna sérstaklega efni um Reykjanesbæ og nágrannabyggðir í Átthagadeild. 
  • Veita nútíma- og faglega upplýsingaþjónustu, millisafnalán, aðgang að nýjustu rafrænu miðlum og lestraraðstöðu.
  • Hafa góða samvinnu við önnur söfn og viðeigandi fagfélög.