Glæpasagnavika og glæpasagnakvöld

Glæpasögur og góðir höfundar


Mánudaginn 24. október hefst glæpasagnavika í Bókasafni Reykjanesbæjar. Glæpasögum verður gert hátt undir höfði þessa daga, glæpagetraun verður á safninu og verður safnið að einum allsherjar glæpavettvangi.

Fimmtudagskvöldið 27. október klukkan 20.00 fáum við glæpsamlega góða gesti í heimsókn.


Glæpasagnahöfundarnir Lilja og Yrsa Sigurðardætur koma og kynna sínar nýjustu glæpasögur. Þær fjalla um áhuga sinn á glæpasögum og hvernig þeirra glæpasögur verða til.

Allir góðir gestir eru glæpsamlega velkomnir