Foreldramorgunn: Draumalandið

Arna Skúladóttir sérfræðingur í svefni barna og höfundur bókarinnar Draumaland kemur á Foreldramorgunn, fimmtudaginn 3.nóvember klukkan 11.00.

Hún ætlar að ræða um svefn og líðan ungra barna. Hún ræðir um hvað sé hægt að gera til að fá börnin til að sofa aðeins betur. 

Allir foreldrar og börn hjartanlega velkomin.

Heitt á könnunni og afsláttur af hádegsverði á Ráðhúskaffi.